Námskeiðið er í samstarfi við Iðjuþjálfafélag Íslands og Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð. Það er ætlað fagfólki í heilbrigðis- og menntakerfinu sem vill dýpka skilning áhvernig áföll hafa áhrif á streitu, tengsl og þroska taugakerfisins og hvernig birtist það í færni, hegðun og þátttöku í daglegu lífi.
Þetta tveggja daga námskeið veitir djúpstæða og hagnýta innsýn í áfalla- og tengslamiðaða nálgun með sérstakri áherslu á iðjuþjálfun. Námskeiðið styður fagfólk í að vinna með meira öryggi, næmni og skýrleika með skjólstæðingum á öllum æviskeiðum.
Áhersla er lögð á taugakerfið, skynúrvinnslu, tengslamyndun og daglega iðju, ásamt verkfærum sem nýtast á starfsvettvangi.
Efnistök námskeiðs eru:
-Mikilvægi fyrstu áranna og þroska miðtaugakerfis
-Áhrif streitu og áfalla á tengsl og færni í daglegu lífi
-Taugakerfið með sérstaka áherslu á skynúrvinnslu.
-Yfirfærsla og hagnýt verkfæri á mismunandi æviskeiðum
Næsta námskeið verðu haldið 7.–8. maí
Frá klukkan 09:00–12:00 og 13:00–16:00
Námskeiðið fer fram bæði í Grænuhlíð Fjölskyldumiðstöð og sem fjarnámskeið. Kaffihlé í báðum vinnulotum er innifalið í verði. ATH hádegismatur er ekki innifalin