Rótfesti
Litlu skrefin sem móta leiðina


Við lifum á tímum þar sem við söfnum þekkingu hraðar en við náum að tileinka okkur hana.
Bækur, námskeið, reels, hugmyndir… við erum oft að drukkna í upplýsingum en skortir rýmið til að innleiða það sem skiptir máli.

Rótfesti er svarið við þessu bili milli að vita og að lifa.
Hér færðu að hægja á, staldra við og festa þekkinguna þína inn í raunverulegar venjur, lífsstíl og daglegt líf.

Flæðibókin – fyrir hið ómeðvitaða, sem vill verða sýnilegt

Ég hvet þig til að nýta þér flæðibók (bullet journal) sem styður þig í að fylgjast með mynstrum, hegðun, spennu og smáum breytingum sem þú annars myndir ekki taka eftir.
Hún er öflugt verkfæri því hún hjálpar þér að:

  • sjá hvað er í raun að gerast milli funda
  • gera hið ómeðvitaða sýnilegra
  • taka eftir litlum skilaboðum sem taugakerfið sendir
  • festa það sem skiptir þig máli í sessi

Það er ekki þekkingin sem breytir lífi okkar, heldur innleiðingin, endurtekningin og meðvitundin sem fylgir litlum daglegum skrefum.

Rótfesti er rými fyrir þessa lífsins vinnu, á þínum forsendum.

Yfirsýn / Innsýn
Skipulag sem hentar þér

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja upplifa sig betur við stjórn í eigin lífi með auknu skipulagi. Þá er sérstök áhersla á notkun dagbókarforms flæðibóka* sem og stafrænum skipulagsverkfærum, og þannig auka velíðan og afköst. Lagt er upp með að nýta skipulag til að ná markmiðum þínum og efla trú á eigin áhrifamátt.

Á námskeiðinu lærir þú:
Leiðir til að öðlast YFIRSÝN yfir dagleg verkefni
-Efla tímastjórnun með skipulagi og forgangsröðun
-Þróa skipulag sem styður við aðlögunarhæfni og sveigjanleika
-Sjá fyrir og bregðast við álagspunktum og stuðla að jafnvægi í daglegu lífi
Leiðir til að öðlast INNSÝN
-þú kynnist eigin vanamynstur og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega líðan.
-Kynnast eigin taugakerfi, leiðum til að draga úr streitu og bæta orkustjórnun.
-Nota ígrundun og sjálfsmat til að sjá hvað styður og hvað krefst aðlögunar
-Þróa meðvitund sem leiðir til raunhæfra breytinga á daglegum venjum

Verð: 116.400 ISK.


*Flæðibækur eru tómar punktaðar bækur, líkt og bullet journal. Þar sem eiganda bókarinnar gefst tækifæri á að setja hana upp eftir sínum þörfum hverju sinni.*https://ljosabladid2023.ljosid.is/ad-vingast-vid-taugakerfid-med-dagbok
Námskeiðinu fylgir lokaður whatsapp stuðningshópur.


Umsögn:

,, Þau fræði og þær aðferðir sem Alda hefur fram að færa. Aukinn skilningur á eigin líkama hefur veitt mér mikilvæg verkfæri til að takast á við áskoranir af ýmsum toga en líka tækifæri til þess að vaxa og þroskastrækta tengsl og auka vellíðan frá degi til dags. Nú hlakka ég bara til að fræðast enn frekar og innleiða  og stöðugleika í eigin líf.”

Senda póst á alda@aldapals.com til að fá nánari upplýsingar eða til að tryggja þitt pláss.
*athugaðu niðurgreiðslu hjá þínu stéttarfélagi