Stundum þarf ekki meira en að stíga út í náttúruna til að anda dýpra, losa um streitu og finna sjálfa sig aftur.
Þetta 6 vikna námskeið sem haldið er þriðja árið í röð, er fyrir konur á öllum aldri sem vilja styrkja taugakerfið, finna meiri ró og jafnvægi og dýpka tengsl við sjálfar sig í gegnum náttúruna – til að blómstra í fjölbreyttum hlutverkum daglegs lífs.

Um námskeiðið

Tímarnir fela í sér

Við leitum leiða til að skapa meiri ró, orku og seiglu í amstri dagsins. Með aðferðum úr iðjuþjálfun og náttúrumeðferð vinnum við með það sem skiptir máli – jafnvægi, næringu fyrir taugakerfið og skýrari stefnu í eigin lífi.

• Fræðslu og innblástur út frá kvennlægum hlutverkum
• Æfingar til að takast á við streitu með taugakerfi kvenna að leiðarljósi
• Verkefni í náttúrunni – bæði einstaklings- og hópverkefni
• Ígrundun og rými til að tengjast sjálfri þér
 

Hagnýtar upplýsingar

Við hittumst einu sinni í viku í sex vikur í náttúru höfuðborgarsvæðisins. Í upphafi og að loknu námskeiði fara fram einstaklingsviðtöl þar sem sett eru markmið og unnið markvisst að því að yfirfæra þekkingu í daglegt líf.

Leiðbeinendur eru Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínardóttir, áfalla- og tengslamiðaðir iðjuþjálfar og með sérhæfingu í náttúrumeðferð.

 
Næsta námskeið hefst: 26. maí 2026
Frá kl 13:00-15:30 UMSÓKN
 
Verð 112.500 kr

*Athugaðu niðugreiðslu hjá þínu stéttarfélagi

Nánari upplýsingar á alda@aldapals.com eða harpayr@idja.is