Flæði lífsins byggir á þeirri einföldu og mikilvægu staðreynd að við erum hluti af náttúrunni en ekki aðskilin frá henni.

Í náttúrunni hægir á kerfinu, skynjun dýpkar og athyglin víkkar.
Taugakerfið fær tækifæri til að róast og endurstilla sig á náttúrulegan hátt.

Í Flæði lífsins vinnum við með náttúruna sem lifandi spegil. Verkefni úti í náttúru, hreyfing, kyrrð, fræðsla og samtal fléttast saman í heildstæða nálgun þar sem unnið er með taugakerfið, líkamsvitund og daglegt líf.
Markmiðið er ekki að “laga” neinn, heldur að skapa aðstæður þar sem innri styrkur, skýrleiki og seigla fá að koma fram.
Flæði lífsins er fyrir þau sem þurfa að staldra við, fá nýtt sjónarhorn og endurheimta jafnvægi.

Leiðbeinendur eru Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínadóttir, iðjuþjálfar og sérfræðingar í náttúrumeðferð.
Nánar um Hörpu á idja.is

Hópar á höfuðborgarsvæðinu

Sex vikna námskeið í náttúru höfuðborgarsvæðisins.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að finna jafnvægi í fjölbreyttum hlutverkum daglegs lífs. Lagt er upp með fræðslu um taugakerfið og leiðir til að koma á aukinni ró. 

Þátttakendur fá tækifæri til að prófa sig áfram við að yfirstíga áskoranir út frá styrkleikum sínum og skoða sjálfa sig í gegnum ýmiskonar verkefni í náttúrunni. Áhersla er lögð á að skoða hvað hefur áhrif á færni og virkni skoðað hvert er verið að stefna, hvort sem það er í nám eða á vinnumarkað.

Einstaklingsviðtöl eru í upphafi og í lok námskeiðs til að setja markmið og vinna að yfirfærslu í hversdagsleikann.

Hentar einstaklingum öllum aldri sem eru að glíma við streitu og vilja skýra stefnu og efla seiglu taugakerfisins með aðstoð náttúrunnar til að ráða betur við verkefni daglegs lífs. 

Næstu námskeið hefjast 29. apríl 2026
Kvennahópur frá kl 09:30-12:00 UMSÓKN
Karlahópur frá kl 13:00-15:30 UMSÓKN

Náttúruhlédrag 25.-28. júní

Fjögurra daga hlé fyrir konur frá daglegu amstri – rými til að hægja á, anda og endurstilla.

Í umhverfi náttúrunnar á Samskara vinnum við með taugakerfið, líkamsvitund og tengsl – við sjálf, aðra og náttúruna. Unnið er út frá hugmyndafræði iðjuþjálfunar, náttúrumeðferðar og jógafræðum.

Dagskráin sameinar náttúrutengingu, hreyfingu, kyrrð, fræðslu og ígrundun. Markmiðið er að skapa öruggt rými þar sem innri styrkur og skýrleiki fá að koma fram. Hlédragið skapar einnig rými til að vera á eigin forsendum í þögn,tengjast innri visku, hlusta þarfir líkamans og mæta þeim með kærleika.

Dagskrá:

Hlédragið byrjar fimmtudaginn 25.júní kl:14:00 og endar sunnudaginn 28.júní kl:16:00 og við tekur heimför. Þátttakendum býðst jafnframt rými að fara Laugarás Lagoon sem er aðeins í 10 mín göngufjarlægð.

  • Hugleiðsla, öndun og hæglæti kl:8-9:00
  • Morgunmatur 9-9:30
  • Fræðsla, hreyfing og kyrrð 9:30-12:30
  • Hádegismatur 12:30-13:30
  • Fræðsla og náttúrutenging 14:00-17:30
  • Kvöldmatur 19:00-20:00
  • Fræðsla, ígrundun,  joga nidra og tónheilun 20:00-22:00

 

Aðstaða: 
Hlédragið er haldið í Samskara við Laugarás í umvefjandi umhverfi náttúrunnar allt um kring. Gist er í 2-3gja manna herbergjum í uppábúnum rúmum í Samskara. Lögð er áhersla á heilnæmt grænmetisfæði úr heimabyggð á meðan hlédragi stendur og boðið verður upp á 3 máltíðir á dag og te,kaffi og ávexti verður í boði allan tímann. 

Náttúruhlédræg hentar þeim sem vilja staldra við, fá nýtt sjónarhorn og fara heim með dýpri ró og skýrari tengingu við eigið flæði.

Verð: 185.000.- á mann. 

Umsókn
Um leið og umsókn er staðfest berst reikningur í heimabanka og hefur þú þá tryggt þér sæti í hlédraginu. 

Ef þetta vekur forvitni getur þú sótt um HÉR og við höfum saband þegar við höfum farið yfir umsóknina.