NÁTTÚRUHLÉDRAG UM SUMARSÓLSTÖÐUR
Fjórir dagar í náttúrunni til að skapa rými fyrir það sem vill verða.
Sólin er hæst á lofti. Í örskamma stund virðist hún staldra við áður en hún heldur áfram.
Sumarsólstöður marka þröskuld í takti náttúrunnar, milli þess sem hefur verið og þess sem getur orðið.
Á þessu fjögurra daga náttúruhlédragi fyrir konur stígum við út úr daglegu amstri og gefum okkur rými til að hægja á, hlusta og stilla okkur inn á það sem vill fá meira líf.
Við vinnum með ásetning, líkama, náttúru og þau meðvituðu og ómeðvituðu mynstur sem móta hvernig við lifum, veljum og höldum okkur til baka.
Í hlédraginu vinnum við með:
- náttúrumeðferð og náttúrutengingu
- líkamsvitund, öndun og mjúka hreyfingu
- taugakerfið og leiðir til að skapa meiri ró og getu
- ásetning og framtíðarsýn
- meðvituð og ómeðvituð mynstur
- ígrundun, kyrrð, jóga nidra og tónheilun
- nærandi samveru með öðrum konum
Þetta er fyrir þig ef…
- þú finnur að eitthvað í lífinu vill breytast
- þú vilt hægja á og heyra betur í þér
- þú vilt vinna með ásetning á líkamsmiðaðan hátt
- þú ert forvitin um mynstrin sem halda aftur af þér
- þú þráir rými, náttúru, næringu og skýrari tengingu við sjálfa þig
Hagnýtar upplýsingar
Ef þú finnur að þetta kallar á þig getur þú sótt um HÉR.
Við förum yfir umsóknir og höfum samband. Plássin eru fá til að halda rýminu rólegu, persónulegu og nærandi.
Hlédragið verður haldið í Samskara á suðurlandi.
Verð frá 120 -180 þúsunr kr.
Þær hafa áratuga reynslu af því að vinna með líkama, taugakerfi, tengsl, streitu og daglegt jafnvægi einstaklinga með það að markmiði að styðja við aukin lífsgæði, innri ró og sjálfbærari þátttöku í lífinu.
Hafðu samband á alda@aldapals.com eða harpayr@idja.is til að fá nánari upplýsingar um verð og dagskrá.