Litlu skrefin sem móta leiðina

Við lifum á tímum þar sem við söfnum þekkingu hraðar en við náum að tileinka okkur hana.
Bækur, námskeið, reels, hugmyndir… við erum oft að drukkna í upplýsingum en skortir rýmið til að innleiða það sem skiptir máli.

Rótfesti er brúin á milli þess að vita og að lifa. Því það er í innleiðingunni sem þekking verður að visku.

Hér færðu að hægja á, staldra við og festa þekkinguna þína inn í raunverulegar venjur, lífsstíl og daglegt líf.

Það er ekki þekkingin sem breytir lífi okkar, heldur innleiðingin, endurtekningin og meðvitundin sem fylgir litlum daglegum skrefum.

Rótfesti er rými fyrir þessa iðkun, á þínum forsendum.
Þú getu sótt um hér

Rótfesti er fyrir þau sem:

  • hafa verið í einstaklingsvinnu eða námskeiði hjá mér

  • vilja halda áfram að innleiða og dýpka

Þetta er ekki grunnnámskeið.
Þetta er áframhaldandi iðkun.

Fyrirkomulag

• Tvisvar í mánuði Zoom-fundir (90 mín)
• Lokuð Telegram-rás
• Aðgangur að vaxandi safni æfinga og verkfæra til að koma aftur heim í líkamann — aftur og aftur.

Mánaðarleg áskrift

Hægt að hefja hvenær sem er.
Hægt að endurmeta hvenær sem er.

Sveigjanleiki er nýja öryggið.

SKRÁNING