Viltu verja meiri tíma úti í náttúrunni, vinna með höndunum og styrkja bæði líkama og huga í góðum félagsskap?
Á þessu 6 vikna námskeiði fyrir karla sameinum við náttúruna, einföld verkefni og samtal til að skapa rými fyrir ró, styrk og aukið jafnvægi í daglegu lífi.

Þetta námskeið er fyrir karla sem vilja stíga út úr hraða dagsins, skilja taugakerfið sitt, og taka þátt í verkefnum sem efla bæði líkama, hug og samfélag, í náttúru.

Um námskeiðið

Um tímana

Í gegnum verkefni í náttúrunni vinnum við með aðferðir úr iðjuþjálfun og náttúrumeðferð til að styrkja taugakerfið, auka seiglu og styðja við heilbrigðari lífsstíl.
Áhersla er lögð á að skapa rými þar sem karlar geta hist, unnið saman og átt heiðarlegt samtal.

• Verkefni í náttúrunni (t.d. tálgun, byggja upp eld, skýli o.fl.)
• Hreyfingu og tengingu við líkamann
• Fræðslu um streitu, jafnvægi og líðan út frá karllægum hlutverkum
• Samtal og ígrundun í hópi

Hagnýtar upplýsingar

Við hittumst einu sinni í viku í sex vikur í náttúru höfuðborgarsvæðisins. Í upphafi og að loknu námskeiði fara fram einstaklingsviðtöl þar sem sett eru markmið og unnið markvisst að því að yfirfæra þekkingu í daglegt líf.

Leiðbeinendur eru Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínardóttir, áfalla- og tengslamiðaðir iðjuþjálfar og með sérhæfingu í náttúrumeðferð.

 
Næsta námskeið hefst: 6. maí 2026
Frá kl 09:30-12:00 UMSÓKN
 
Verð 112.500 kr

*Athugaðu niðugreiðslu hjá þínu stéttarfélagi

Nánari upplýsingar á alda@aldapals.com eða harpayr@idja.is