Yfirsýn / Innsýn er 4 vina og netnámskeið fyrir fólk sem vill skapa meiri skýrleika, mildi og flæði í daglegu lífi.

Á námskeiðinu skoðum við hvernig það sem við gerum, og hvernig við gerum það, hefur áhrif á orku, líðan og ákvarðanir.

Með yfirsýn lærum við að stíga út úr álagi augnabliksins og sjá heildarmyndina.
Með innsýn lærum við að skilja hvernig lífið hefur áhrif á okkur að innan.
Þegar þetta vinnur saman, skapast raunverulegt val.

Námskeiðið hentar vel sem:
-eða fyrsta skref fyrir þau sem vilja byrja að taka ábyrgð á eigin orkustigi
-sjálfstætt námskeið
-inngangur inn í dýpri vinnu

Yfirsýn til að muna. Innsýn til að velja.

Námskeiðinu fylgir lokaður stuðningshópur.

Verð: 76.400 ISK.

Umsögn

,,Námskeiðið var frábært í alla staði.
Ég lærði mikið um taugakerfið mitt og nýjar leiðir til að takast á við kvíða og ójafnvægi. Ég lærði að hlusta á taugakerfið og að taka lítil skref sem henta mér, í stað þess að keyra áfram á hörkunni og “krassa”.
Ég fór að taka eftir því hvað í mínu lífi nærir mig og hvað tekur frá mér orku sem er mjög mikilvægt. Í lok námskeiðs er ég með fullt af góðum verkfærum sem ég hlakka til að nýta í daglegu lífi til frekari vaxtar.
Alda er uppfull af fróðleik og með hlýja nærveru sem skilar sér þó námskeiðið sé í gegn um netið.
Takk fyrir mig!”